{"title":"„Áfram í gegnum þennan brimskafl“: Greining á tilkynningum rektors Háskóla Íslands á tímum COVID 19","authors":"Gyða Margrét Pétursdóttir, T. M. Heijstra","doi":"10.24270/tuuom.2022.31.6","DOIUrl":null,"url":null,"abstract":"Mikilvægt er að standa vörð um jafnrétti kynjanna á tímum Covid 19 þar sem búast má við bakslagi, bæði vegna þess að staða undirskipaðra hópa versnar enn frekar og á óvissutímum er hætta á að jafnréttisáherslur mæti afgangi. Í greininni eru tilkynningar rektors Háskóla Íslands til nemenda og starfsfólks í kórónuveirufaraldrinum greindar út frá sjónarmiðum kynjajafnréttis. Gögn rannsóknarinnar samanstanda af 96 tilkynningum sem sendar voru á tímabilinu febrúar 2020 til maí 2021. Gögnin, um 11.000 orð, voru orðræðugreind. Helstu niðurstöður eru þær að áhersla er lögð á kennslu og stuðning við nemendur, vinnu sem konur sinna í meiri mæli en karlar. Um leið er lögð áhersla á að halda uppteknum hætti varðandi rannsóknavirkni þrátt fyrir breyttar aðstæður, áhersla sem karlar virðast frekar geta tileinkað sér. Þannig er staða Háskóla Íslands sem háskóla í fremstu röð í forgrunni og fjölskyldu- og jafnréttisstefna í bakgrunni","PeriodicalId":40418,"journal":{"name":"Timarit um Uppeldi og Menntun-Icelandic Journal of Education","volume":null,"pages":null},"PeriodicalIF":0.3000,"publicationDate":"2023-01-09","publicationTypes":"Journal Article","fieldsOfStudy":null,"isOpenAccess":false,"openAccessPdf":"","citationCount":"0","resultStr":null,"platform":"Semanticscholar","paperid":null,"PeriodicalName":"Timarit um Uppeldi og Menntun-Icelandic Journal of Education","FirstCategoryId":"1085","ListUrlMain":"https://doi.org/10.24270/tuuom.2022.31.6","RegionNum":0,"RegionCategory":null,"ArticlePicture":[],"TitleCN":null,"AbstractTextCN":null,"PMCID":null,"EPubDate":"","PubModel":"","JCR":"Q4","JCRName":"EDUCATION & EDUCATIONAL RESEARCH","Score":null,"Total":0}
„Áfram í gegnum þennan brimskafl“: Greining á tilkynningum rektors Háskóla Íslands á tímum COVID 19
Mikilvægt er að standa vörð um jafnrétti kynjanna á tímum Covid 19 þar sem búast má við bakslagi, bæði vegna þess að staða undirskipaðra hópa versnar enn frekar og á óvissutímum er hætta á að jafnréttisáherslur mæti afgangi. Í greininni eru tilkynningar rektors Háskóla Íslands til nemenda og starfsfólks í kórónuveirufaraldrinum greindar út frá sjónarmiðum kynjajafnréttis. Gögn rannsóknarinnar samanstanda af 96 tilkynningum sem sendar voru á tímabilinu febrúar 2020 til maí 2021. Gögnin, um 11.000 orð, voru orðræðugreind. Helstu niðurstöður eru þær að áhersla er lögð á kennslu og stuðning við nemendur, vinnu sem konur sinna í meiri mæli en karlar. Um leið er lögð áhersla á að halda uppteknum hætti varðandi rannsóknavirkni þrátt fyrir breyttar aðstæður, áhersla sem karlar virðast frekar geta tileinkað sér. Þannig er staða Háskóla Íslands sem háskóla í fremstu röð í forgrunni og fjölskyldu- og jafnréttisstefna í bakgrunni