{"title":"„Ég hreinlega get ekki beðið eftir að hefjast handa“","authors":"Anna Ólafsdóttir, Sólveig Zophoníasdóttir","doi":"10.24270/netla.2024/6","DOIUrl":null,"url":null,"abstract":"Greinin segir frá rannsókn höfunda á þremur námskeiðum áherslusviðsins Upplýsingatækni í námi og kennslu sem kennt er á meistarastigi í Háskólanum á Akureyri. Markmið þess hluta rannsóknarinnar sem greinin beinir athyglinni að var að varpa ljósi á upplifun nemenda af námskeiðum þar sem lögð var áhersla á virka þátttöku nemenda í mótun námskrár og hvort og þá hvernig sú upplifun rímaði við lykilþætti MUSIC-líkansins, en rannsóknir hafa sýnt að þessir lykilþættir efli áhugahvöt og virkni nemenda, séu þeir til staðar. Gagna var aflað um upplifun þátttakenda af námskeiðunum og MUSIC-líkanið nýtt sem greiningarrammi við úrvinnslu gagna. \nNiðurstöður rannsóknarinnar eru að nemendur upplifðu valdeflingu, gagnsemi, góðan árangur, áhuga og umhyggju í námskeiðunum, þ.e.a.s. þá lykilþætti sem MUSIC-líkanið samanstendur af. Þær sýna líka ótvíræð merki um að þessir þættir hafi skilað sér í sterkri áhugahvöt, virkni í námsferlinu öllu og eflt með nemendum seiglu þegar þau stóðu frammi fyrir áskorunum. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að þátttaka nemenda í mótun námskrár námskeiðanna hafi átt þátt í þessari upplifun þeirra. \nUm leið og höfundar setja þann fyrirvara að niðurstöðurnar byggja á gögnum frá tiltölulega fáum einstaklingum vegur á móti að fjölbreyttum gögnum var safnað og það skapaði bæði breidd og dýpt þegar horft er á niðurstöðurnar. Að mati greinarhöfunda veitir rannsóknin dýrmætar upplýsingar um nám háskólanemenda sem hafa gildi fyrir háskólakennara, bæði á Íslandi og í alþjóðlegu tilliti, innan fræðasviðs kennslufræðilegra rannsókna á háskólastigi.","PeriodicalId":507521,"journal":{"name":"Netla","volume":"144 2","pages":""},"PeriodicalIF":0.0000,"publicationDate":"2024-06-04","publicationTypes":"Journal Article","fieldsOfStudy":null,"isOpenAccess":false,"openAccessPdf":"","citationCount":"0","resultStr":null,"platform":"Semanticscholar","paperid":null,"PeriodicalName":"Netla","FirstCategoryId":"1085","ListUrlMain":"https://doi.org/10.24270/netla.2024/6","RegionNum":0,"RegionCategory":null,"ArticlePicture":[],"TitleCN":null,"AbstractTextCN":null,"PMCID":null,"EPubDate":"","PubModel":"","JCR":"","JCRName":"","Score":null,"Total":0}
引用次数: 0
Abstract
Greinin segir frá rannsókn höfunda á þremur námskeiðum áherslusviðsins Upplýsingatækni í námi og kennslu sem kennt er á meistarastigi í Háskólanum á Akureyri. Markmið þess hluta rannsóknarinnar sem greinin beinir athyglinni að var að varpa ljósi á upplifun nemenda af námskeiðum þar sem lögð var áhersla á virka þátttöku nemenda í mótun námskrár og hvort og þá hvernig sú upplifun rímaði við lykilþætti MUSIC-líkansins, en rannsóknir hafa sýnt að þessir lykilþættir efli áhugahvöt og virkni nemenda, séu þeir til staðar. Gagna var aflað um upplifun þátttakenda af námskeiðunum og MUSIC-líkanið nýtt sem greiningarrammi við úrvinnslu gagna.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru að nemendur upplifðu valdeflingu, gagnsemi, góðan árangur, áhuga og umhyggju í námskeiðunum, þ.e.a.s. þá lykilþætti sem MUSIC-líkanið samanstendur af. Þær sýna líka ótvíræð merki um að þessir þættir hafi skilað sér í sterkri áhugahvöt, virkni í námsferlinu öllu og eflt með nemendum seiglu þegar þau stóðu frammi fyrir áskorunum. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að þátttaka nemenda í mótun námskrár námskeiðanna hafi átt þátt í þessari upplifun þeirra.
Um leið og höfundar setja þann fyrirvara að niðurstöðurnar byggja á gögnum frá tiltölulega fáum einstaklingum vegur á móti að fjölbreyttum gögnum var safnað og það skapaði bæði breidd og dýpt þegar horft er á niðurstöðurnar. Að mati greinarhöfunda veitir rannsóknin dýrmætar upplýsingar um nám háskólanemenda sem hafa gildi fyrir háskólakennara, bæði á Íslandi og í alþjóðlegu tilliti, innan fræðasviðs kennslufræðilegra rannsókna á háskólastigi.