{"title":"„Ég virðist alltaf falla á tíma“: Reynsla nemenda sem glíma við námsvanda í Háskóla íslands","authors":"Sigrún Harðardóttir, Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir","doi":"10.24270/TUUOM.2018.27.8","DOIUrl":null,"url":null,"abstract":"Háskólar þurfa að bregðast við aukinni fjölbreytni í hópi nemenda með því að mæta ólíkum þörfum þeirra. Í greininni eru kynntar niðurstöður rannsóknar á upplifun og reynslu nemenda sem stunda nám við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu nemenda sem glíma við námsvanda. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvað styður og hvað hindrar nemendur í HÍ sem glíma við námsvanda í að takast á við nám sitt? Tekin voru þrjú einstaklingsviðtöl og rýnihópsviðtal við sex nemendur í BA-námi við félagsráðgjafardeild. Niðurstöður sýna að viðmælendur voru ánægðir með ýmsa þætti í skipulagi námsins og fannst skilningur kennara á stöðu þeirra vera góður en töldu þó að í kennsluháttum væru ýmsar hindranir sem gerðu þeim erfitt fyrir. Þær hindranir felist meðal annars í erfiðleikum við aðlögun að háskólasamfélaginu, álagi í námi sem veldur streitu og kvíða og því að of lítið tillit sé tekið til námsvanda þeirra. Slík innsýn í viðhorf nemenda sem glíma við námsvanda getur gagnast kennurum við að taka tillit til fjölbreytileikans í nemendahópnum og stuðlað þannig að bættri sálfélagslegri líðan nemenda, sem aftur hjálpar þeim við námið. Auk þess sýna niðurstöður að aukin áhersla á kennslu í fræðilegum vinnubrögðum ásamt virkri endurgjöf í námi getur hjálpað nemendum með námsvanda.","PeriodicalId":40418,"journal":{"name":"Timarit um Uppeldi og Menntun-Icelandic Journal of Education","volume":" ","pages":""},"PeriodicalIF":0.3000,"publicationDate":"2018-12-21","publicationTypes":"Journal Article","fieldsOfStudy":null,"isOpenAccess":false,"openAccessPdf":"","citationCount":"0","resultStr":null,"platform":"Semanticscholar","paperid":null,"PeriodicalName":"Timarit um Uppeldi og Menntun-Icelandic Journal of Education","FirstCategoryId":"1085","ListUrlMain":"https://doi.org/10.24270/TUUOM.2018.27.8","RegionNum":0,"RegionCategory":null,"ArticlePicture":[],"TitleCN":null,"AbstractTextCN":null,"PMCID":null,"EPubDate":"","PubModel":"","JCR":"Q4","JCRName":"EDUCATION & EDUCATIONAL RESEARCH","Score":null,"Total":0}
引用次数: 0
Abstract
Háskólar þurfa að bregðast við aukinni fjölbreytni í hópi nemenda með því að mæta ólíkum þörfum þeirra. Í greininni eru kynntar niðurstöður rannsóknar á upplifun og reynslu nemenda sem stunda nám við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu nemenda sem glíma við námsvanda. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvað styður og hvað hindrar nemendur í HÍ sem glíma við námsvanda í að takast á við nám sitt? Tekin voru þrjú einstaklingsviðtöl og rýnihópsviðtal við sex nemendur í BA-námi við félagsráðgjafardeild. Niðurstöður sýna að viðmælendur voru ánægðir með ýmsa þætti í skipulagi námsins og fannst skilningur kennara á stöðu þeirra vera góður en töldu þó að í kennsluháttum væru ýmsar hindranir sem gerðu þeim erfitt fyrir. Þær hindranir felist meðal annars í erfiðleikum við aðlögun að háskólasamfélaginu, álagi í námi sem veldur streitu og kvíða og því að of lítið tillit sé tekið til námsvanda þeirra. Slík innsýn í viðhorf nemenda sem glíma við námsvanda getur gagnast kennurum við að taka tillit til fjölbreytileikans í nemendahópnum og stuðlað þannig að bættri sálfélagslegri líðan nemenda, sem aftur hjálpar þeim við námið. Auk þess sýna niðurstöður að aukin áhersla á kennslu í fræðilegum vinnubrögðum ásamt virkri endurgjöf í námi getur hjálpað nemendum með námsvanda.